fristundalaesi@gmail.com

10 Einföld atriði

1. Höfðum til barnanna

Höfðum til barna með myndrænu dagskipulagi, valtöflu og matseðli.

2. Merkjum allt

Merkjum allt milli himins og jarðar á frístundaheimilinu með orði og mynd. Gaman er að gera það í samstarfi við börnin.

3. Bækur sýnilegar

Höfum bækur sýnilegar og látum skemmtilegar bækur snúa fram til að auka áhuga barnanna.

4. Hressing að gæðastund

Gerum hressinguna að gæðastund með spjalli við börnin eða ævintýralegri sögustund.

5. Upplýsingar í augnhæð barna

Aukum upplýsingaflæði til barnanna með myndrænum reglum, leiðbeiningum og sáttmálum sem eru sett upp í augnhæð barna. Tilvalið er að hengja upp fjölbreytt veggspjöld Frístundalæsis t.d. tilfinningavegspjaldið.

6. Lestrarhorn

Komum upp notalegu lestrarhorni með fjölbreyttu úrvali af bókum á mörgum tungumálum. Tilvalið er að skreyta rýmið með bókaormi þar sem bækurnar sem börnin hafa lesið eru kortlagðar.

7. Kortleggja tungumálaauð

Hvaða tungumál eru töluð á frístundaheimilinu? Kortleggjum þau og höfum stafróf þeirra sýnileg.

8. Tíu mínútna reglan

Notumst við 10 mínútna regluna: Gefðu þér 10 mínútur til að eiga í samskiptum við hvert barn sem stendur höllum fæti félagslega eða er fjöltyngt með íslensku sem annað tungumál.

9. Algengustu orðin

Hver eru 100 algengustu orðin í íslensku? Höfum þau sýnileg annað hvort á gólfi eða á veggjum.

10. Hópleikir

Bjóðum upp á leik dagsins. Skipuleggjum einn hópleik í útiveru ásamt því að hafa lýsingu og reglur sýnilegar.