fristundalaesi@gmail.com

Náttúru og umhverfislæsi – Gróðurræktunarklúbbur

Gróðurræktunarklúbbur

Nálægðin við gróðurinn er mikilvæg fyrir börnin á margan hátt. Í Gróðurræktunarklúbb fá þau tækifæri til að rækta matjurtir, plöntur eða tré undir handleiðslu starfsfólks. Börnin fá aðstoð og fræðslu um hvernig eigi að rækta plöntur og jurtir svo að þær dafni vel og þeim kennt hvernig megi nýta það sem ræktað er til matargerðar. 

f

Leiðbeiningar:

Til að byrja með eru tekin fram nokkur ílát og aðstoðað börnin við að setja mold í þau. Því næst er fjallað um það sem á að gróðursetja og sýnt hvernig það er gert.

Mikilvægt er að merkja heiti plantna og jurta og mætti til þess nota smáforritið Plöntulykilinn eða bókina um Flóru Íslands.

Gott er að styðjast við sáðalmanak til þess að ná sem bestum árangri við gróðursetninguna. Hægt er að kynna ólíkar tegundir af plöntum og jurtum fyrir börnunum í hverjum klúbb. Mætti þá sýna myndir og myndbönd af ferli til dæmis kartöflu, frá því að henni er sáð og þar til kartaflan endar soðin heima á disk eða sem snakk. 

Þá er jafnvel hægt að útbúa litla ljósmyndabók um ferlið frá gróðursetningu og þangað til plönturnar verða fullvaxnar og skrifa stutta lýsingu undir myndirnar. Hægt er að nota smáforritið Book Creator til að þess að búa til rafræna bók.

Einnig getur verið fróðlegt að rölta með krakkana um nærumhverfið, skoða plöntur sem verða á þeirra vegi og greina þær. Er þá hægt að notast við smáforritið LeafSnap þar sem laufblað er skannað inn til þess að finna hvaða trjátegund það tilheyrir. Gott er að ræða við börnin um það hvaða plöntur megi týna og hverjar ekki og mikilvægi þess að bera virðingu fyrir öllum plöntum. 
Í hverjum klúbb er síðan hægt að gróðursetja meira, huga að því sem gróðursett hefur verið, taka ljósmyndir eða ræða um hvernig hægt sé að nýta það sem ræktað er og hvernig megi nýta matarafganga í ýmislegt hagnýtt. Til eru margar góðar uppskriftir eins og að krækiberjasaft, sem hægt væri að framkvæma með börnunum. Það má finna fleiri uppskriftir á vefnum Náttúran eða í fjölbreyttum matjurtabókum.

Aldursviðmið: Allir

Stærð hóps: Litlir hópar

Undirbúningur: Tilvalið er að kynna sér ólíkar plöntur, matjurtir og tré. Gróðursetningu og umhirðu þeirra. Finna til mold, frækorn, ílát og vatnskönnu. Gott er að vera búinn að finna myndir af því sem á að gróðursetja hverju sinni.

Áhöld: Gróðurmold, trjáplanta, frækorn eða afleggjari, ílát og vatnskanna. Merkispjöld og penni. Bókin Flóra Íslands og spjaldtölva eftir þörfum.

Rými: Rólegt lítið rými og útisvæði


Smáforrit:

LeafSnap er smáforrit þar sem greina má plöntur eftir fjölbreyttum leiðum. Hægt er að nota forritið til að skanna inn laufblað til þess að finna út hvaða trjátegund það tilheyrir.

f

Book Creator er bókagerðaforrit til þess að búa til gagnvirka rafbók. Hægt er að setja inn myndir, texta, hljóð og upptökur. Einnig er hægt að bæta við ýmsu efni úr öðrum forritum inn í bókina svo sem brúðugerðamyndum, teiknimyndum eða klippimyndum.

Kennslumyndbönd: