fristundalaesi@gmail.com

Ítarefni

Samstarfsaðilar og fræðsla

Miðja máls og læsis 

Miðja máls og læsiser þekkingarteymi á vegum Reykjavíkurborgar. Teymið fer á vettvang og veitir starfsfólki á frístundaheimilum stuðning, ráðgjöf og fræðslu varðandi mál og læsi í víðum skilningi, sniðið að hverri starfsstöð. Þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um ýmis smáforrit og spil til málörvunar. Sérstakir brúarsmiðir veita jafnframt leiðsögn vegna barna sem hafa annað móðurmál en íslensku.

Leikskólar og grunnskólar

Það hefur reynst bæði hagnýtt og þýðingamikið að vinna í nánu samstarfi við leikskóla og grunnskóla hverfisins þegar frístundaheimili fer að vinna markvisst að eflingu máls og læsis. 


Borgarbókasafn

Á bókasöfnumborgarinnar er að finna fjölbreytt úrval bóka. Þar eru bókaverðir tilbúnir að vinna ýmis verkefni með starfsfólki frístundaheimila og taka á móti barnahópum í bókakynningar, ratleiki, sögustundir og fleira skemmtilegt. Frístundaheimilum stendur einnig til boða að fá lánaða þemakassa fulla af bókum tengdum umbeðnu þema sem og fá að láni rafbækur. Þar að auki halda bókasöfnin úti samstarfsverkefninu Lestrarvinir ásamt Miðju máls og læsis, sem gengur út á að auka bókaáhuga, lesskilning og íslenskukunnáttu barna af erlendum uppruna.

Orð of orði 

Hægt er að óska eftir námskeiðum eða smiðjum sem tengjast kennslufræði Orðs af orði, stökum aðferðum eða almennt um eflingu orðaforða og læsis. Orð af orði er kennslufræði sem hefur það að markmiði að efla læsi barna gegnum skemmtileg verkefni og leika sér með orðaforða.


Spilavinir

Hjá fyrirtækinu Spilavinum er hægt að finna fjölmörg skemmtileg spil sem efla og styðja við læsi í víðum skilningi. Þau taka á móti starfsfólki frístundaheimila til sín í fræðslu eða mæta á starfsstaði. Hægt er að óska sérstaklega eftir að spilakynningin sé miðuð að eflingu máls og læsis eða jafnvel hægt að fá kynningu á spilum sem snúa að ákveðnum læsisflokki svo sem félagslæsi eða umhverfislæsi.

Móðurmálssamtökin

Markmið Móðurmálssamtakanna er að kenna fjöltyngdum börnum þeirra móðurmál, stuðla að þróun móðurmálskennslu og styðja við virkt tvítyngi í samfélaginu. Samtökin bjóða upp á áhugaverða fræðslu sem snýr að mikilvægi móðurmáls, kostum og áskorunum tvítyngis og fjöltyngis og kennslu barna með annað móðurmál en íslensku.


Mixtúra

Mixtúra er margmiðlunarver Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem býður upp á fjölbreytt úrval af tækjum og búnaði sem frístundaheimili geta fengið að láni. Einnig er hægt að fá fræðslu hjá þeim og fara á skemmtileg námskeið um allskyns tækninýjungar sem geta nýst í starfi frístundaheimila.

Skógræktarfélag Reykjavíkur

Skógræktarfélag Reykjavíkur, sem staðsett er í Heiðmörk, býður upp á áhugaverðar kynningu fyrir börn og starfsfólk frístundaheimilanna. Hægt er að fræðast um ýmislegt s.s. trjárækt og skógrækt og gildi skóga í náttúrunni sem er afar fróðlegt. Einnig tekur skógræktarfélagið við hópum í vettvangsferð þar sem þau geta fá tækifæri til að gróðursetja tré og/eða njóta svæðisins og aðstöðunnar sem þar er í boði.


Réttindaskóli UNICEF

Réttindaskóli UNICEF hefur það að markmiði að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Réttindaskóli UNICEF er verkefni sem starfrækt er innan ýmissa skóla og frístundaheimila. Hægt er að óska eftir því að fá kynningu á verkefninu. Einnig geta frístundaheimili í samstarfi við grunnskóla hverfsins óskað eftir að gerast réttindafrístund á heimasíðu UNICEF.

Umboðsmaður barna

Umboðsmaður barna vinnur að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi þeirra. Hægt er að óska eftir að fá kynningar að fræðslu um réttindi barna fyrir börn og/eða starfsfólk frístundarheimila.