fristundalaesi@gmail.com

Vísindalæsi – Spurningaklúbbur

Spurningaklúbbur

Gaman er að fara í spurningaleiki með börnum um allt milli himins og jarðar. Starfsfólk getur séð um að undirbúa spurningarnar og safna börnin stigum með því að svara rétt. Geta börnin einnig búið til sínar eigin spurningar sem þau geta spurt hvort annað. 

f

Leiðbeiningar:

Gott er að ákveða tiltekið þema hverju sinni, svo sem náttúru, tölvur eða tækni og útbúa spurningalista. Jafnfram þarf að ákveða stigagjöfina fyrirfram.

Hægt er að finna spurningalista og spurningaleiki í fjölbreyttum bókum eins og Stóru spurningabókinni, á Leikjavefnum og í þættinum Kveikt á perunni

Í upphafi klúbbsins er gott að fá börnin til að setjast í hring eða hver í sínum stól og getur frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi byrjað á því að vera spyrill. Þau sem vilja svara rétta upp hönd og sá sem er fyrstur að setja höndina á loft fær svarréttinn. Það getur verið gott að hafa lítinn bolta við höndina og kasta til þess sem fær svarréttinn. Þegar hann hefur lokið að svara kastar hann boltanum tilbaka og getur þannig einungis sá sem hefur boltann svarað spurningunni hverju sinni. 

Í úrslitum spurningakeppninnar mætti síðan nota smáforritið Orðaleikurinn sem snýst um að leysa úr stafarugli.
Einnig er hægt að nota snjalltæki þar sem að finna má fjöldann allan af tilbúnum spurningaleikjum eins og smáforritið Kahoot. Þar er auk þess hægt að búa til sinn eigin spurningaleik. Þá getur verið skemmtilegt að deila spurningaleiknum með öðrum frístundaheimilum og fara í spurningakeppni við þau í rauntíma.

Aldursviðmið: Allir

Stærð hóps: Litlir eða meðalstór hópar

Undirbúningur: Gott er að útbúa spurningalista og ákveða stigagjöfina. Einnig er hægt að finna til efni til að aðstoða börnin við að búa til spurningarleiki. Ef nota á snjalltæki er gott að kynna sér smáforritið Kahoot og jafnvel horfa á kennslumyndbandið hér fyrir neðan

Áhöld: Blöð og blýantar eða spjaldtölvur eftir þörfum

Rými: Hljóðlátt rými


Smáforrit:

Kahoot býður upp á að búa til allskonar spurningaleiki í smáforritinu Kahoot eða finna tilbúna leiki. Margir geta spilað saman í einu og nota þá mismunandi snjalltæki til þess að svara spurningunum. Einnig getur verið skemmtilegt að fara í spurningakeppni milli frístundaheimila.

Orðaleikurinn er skemmtilegur leikur þar sem mynd birtist ásamt stafarugli. Bókstöfunum þarf síðan að raða í rétta röð til að mynda orð. Hver leikur inniheldur 3 orð og þegar þeim hefur öllum verið raðað rétt, þá opnast næsta borð.