fristundalaesi@gmail.com

Heilsulæsi – Smáskref

Efling máls og læsis á frístundaheimilum

Einföld smáskref



Til þess að hefjast handa við að efla heilsulæsi markvisst í starfi frístundaheimila er hægt að byrja á þessum smáskrefum. Skrefin þrjú eru nokkuð einföld í sniðum og eiga það sameiginlegt að þurfa takmarkaðan undirbúning og taka stuttan tíma í framkvæmd.

Hljóðbók

Notalegt getur verið að hlusta á hljóðbók í síðdegishressingunni. Hægt er að finna fjölbreytt úrval af hljóðbókum á öllum Borgarbókasöfnum.


Einnig er að finna lista með áhugaverðum hljóðbókum í verkfærakistu Frístundalæsis. Þar er listi yfir stuttar hljóðbækur og lengri.

Áhugaverðir hlekkir

Hljóðbókarlisti

Hreinlæti

Myndrænar leiðbeiningar um handþvott hafðar í augnhæð barna nálægt öllum vöskum á frístundaheimilinu og þau hvött til að þvo sér um hendur áður en þau fá sér að borða.

Áhugaverðir hlekkir

Handþvottur

Fæðuhringur

Höfum fæðuhringinn sýnilegan í augnhæð barna ásamt ráðleggingum varðandi síðdegishressingu.