Líffærakerfi
f
Verkfærið Líkaminn samanstendur af sjö veggspjöldum sem sýna helstu líffærakerfi mannslíkamans. Efst á hverju veggspjaldi er heiti líffærakerfisins, svo sem útlimir, vöðvakerfi, meltingar- og þvagkerfi, öndunarkerfi, beinkerfi, blóðrásarkerfi og taugakerfi.
Tilgangur verkfærisins er að efla skilning barna á starfsemi líkamans og styðja við heilsulæsi þeirra.
Veggspjöldin má hengja upp á sýnilegum stað og nýta sem upphafspunkt í samtölum um líkamann, heilsu og hvernig mismunandi líffærakerfi vinna saman.
