fristundalaesi@gmail.com

Miðlalæsi – Smáskref

Efling máls og læsis á frístundaheimilum

Einföld smáskref



Til þess að hefjast handa við að efla miðlalæsi markvisst í starfi frístundaheimila er hægt að byrja á þessum smáskrefum. Skrefin þrjú eru nokkuð einföld í sniðum og eiga það sameiginlegt að þurfa takmarkaðan undirbúning og taka stuttan tíma í framkvæmd.

Aðgengi að blöðum og tímaritum

Greiður aðgangur að fjölmiðlum fyrir börn á frístundaheimilum er mikilvægur.

Hægt er að tryggja aðgang allra barna frístundaheimilisins með því að gerast áskrifandi af blöðum, tímaritum og bókaklúbbum ætluðum börnum.

Tilvalið er að hafa nýtt efni sýnilegt til þess að auka aðgengi barnanna að efninu.

Hægt er að láta nýtt efni snúa fram og jafnvel merkja með áberandi merki eða límmiða.

Áhugaverðir hlekkir

Disneybækur

Útvarp/hlaðvarp

Gaman getur verið að hlusta á útvarpsþætti eða hlaðvarpsþætti ætlaða börnum á meðan þau dunda sér í rólegri rýmum frístundaheimilisins.

Útvarp KrakkaRúv og Selsvarpið eru dæmi um útvarp/hlaðvarp fyrir börn.

Fjölmiðlaleiðbeiningar

Á frístundaheimilinu Undralandi er börnum kennt að nálgast fjölmiðla á ábyrgan og áhrifaríkan hátt.

Veggspjöld með leiðbeiningum eru höfð sýnileg á svæðum þar sem fjölmiðlanotkun á sér stað. Þær snúa að því hvar og hvernig hægt er að nálgast tiltekinn miðil, hvers ætlast er til af börnunum sjálfum við notkun á miðlinum og hver réttindi þeirra eru þegar kemur að miðlanotkun.

Mikilvægt er að allar leiðbeiningarnar séu hafðar í orði og mynd.

KrakkaRúv er gott dæmi um fjölmiðil ætlaðan börnum.

Áhugaverðir hlekkir

FjölmiðlaleiðbeiningarSAFT