Veggspjald um miðlalæsi á frístundaheimilum
f
Veggspjaldið um miðlalæsi er sérstaklega hannað fyrir frístundaheimili. Á því eru helstu þættir miðlalæsis settir fram á einfaldan og aðgengilegan hátt fyrir börn.
Tilgangur veggspjaldsins er að kynna börnum hvað miðlalæsi er og hvernig það tengist daglegu starfi á frístundaheimilum. Veggspjaldið má einfaldlega hengja upp á sýnilegan stað svo börnin geti skoðað það og velt fyrir sér innihaldi þess. Einnig má nota það sem upphafspunkt í umræðum um miðlalæsi, til dæmis um hvernig það birtist í leik og starfi á frístundaheimilum eða sem hluta af skipulögðu hópastarfi.
Neðst á spjaldinu er QR-kóði sem vísar á heimasíðu Frístundalæsis. Þar má finna nánari upplýsingar, verkefni og fjölbreyttar hugmyndir um hvernig megi efla miðlalæsi barna á frístundaheimilum.
