Líkaminn okkar
f
Verkfærið Líkamaspil er borðspil þar sem leikmenn nota tening og peð til að færast áfram á spilaborði. Á völdum reitum er að finna fyrirmæli sem tengjast líkamanum, heilsu og daglegum venjum.
Leikmenn geta til dæmis fengið að færa sig áfram ef þeir huga vel að hreyfingu eða hreinlæti. Þá færast leikmenn aftur á bak ef þeir gleyma að drekka vatn eða sinna líkamanum.
Tilgangur spilsins er að efla skilning barna á heilsu og líkamsvitund í gegnum leik á gagnvirkan hátt. Spilið skapar tækifæri til samtals um góðar venjur og hvernig við hugum að líkamanum í daglegu lífi.
