fristundalaesi@gmail.com

Frístundalæsi

Hvað er Frístundalæsi?

Frístundalæsi er margverðlaunaður hugmyndabanki um hvernig megi efla mál og læsi á frístundaheimilum. Hugmyndabankinn er ætlaður starfsfólki frístundaheimilum landsins og þar koma fram ýmsar hugmyndir um hvernig efling máls og læsis getur farið fram á frístundaheimilum sem hvert og eitt frístundaheimili getur tileinkað sér eða lagað að sínum þörfum.


Heimasíðunni hefur verið skipt í þær sjö tegundir læsis sem frístundaheimili vinna hvað mest með að undanskildu hefðbundnu læsi sem tvinnað hefur verið inn í þær. Þessar tegundir læsis eru; félagslæsi, lista- og menningarlæsi, miðlalæsi, samfélagslæsi, vísindalæsi, náttúru- og umhverfislæsi og heilsulæsi.


Á heimasíðunni er að finna stutta umfjöllun um hverja tegund læsis fyrir sig, hugmyndir sem hægt er að fraxamkvæma í almennu starfi og hugmyndir að klúbbastarfi. Einnig er sagt frá fyrirmyndarklúbbum sem eru starfræktir í borginni, spennandi þemadögum, uppbyggilegum smáforritum og ítarefni.