fristundalaesi@reykjavik.is

Verkfærakista- Frístundalæsiskassi- Frístundalæsisveggspjald

Efling máls og læsis á frístundaheimilum

Veggspjald um mál og læsi á frístundaheimilum

f

Veggspjaldið um Frístundalæsi er sérstaklega hannað fyrir frístundaheimili. Á því eru sjö læsistegundir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Tilgangur veggspjaldsins er að kynna börnum helstu leiðir sem efla mál og læsi þeirra á frístundaheimilum. Veggspjaldið má hengja upp á sýnilegum stað í augnhæð barna svo þau geti skoðað það og velt fyrir sér innihaldi þess.

Neðst á veggspjaldinu er QR‑kóði sem vísar á heimasíðu Frístundalæsis. Þar má finna nánari upplýsingar, verkefni og fjölbreyttar hugmyndir um hvernig megi vinna með læsistegundirnar sjö og efla mál og læsi barna á frístundaheimilum.