fristundalaesi@reykjavik.is

Verkfærakista- Félagslæsiskassi- Félagslæsisveggspjald

Efling máls og læsis á frístundaheimilum

Veggspjald um félagslæsi á frístundaheimilum

f

Veggspjaldið um félagslæsi er sérstaklega hannað fyrir frístundaheimili. Á því eru helstu þættir félagslæsis settir fram á einfaldan og aðgengilegan hátt fyrir börn.

Tilgangur veggspjaldsins er að kynna börnum hvað félagslæsi er og hvernig það tengist daglegu starfi á frístundaheimilum. Veggspjaldið má einfaldlega hengja upp á sýnilegan stað svo börnin geti skoðað það og velt fyrir sér innihaldi þess. Einnig má nota það sem upphafspunkt í umræðum um félagslæsi, til dæmis um hvernig það birtist í leik og samskiptum á frístundaheimilum eða sem hluta af skipulögðu hópastarfi.

Neðst á spjaldinu er QR-kóði sem vísar á heimasíðu Frístundalæsis. Þar má finna nánari upplýsingar, verkefni og fjölbreyttar hugmyndir um hvernig megi efla félagslæsi barna á frístundaheimilum.

f