Bókaormur
f
Bókaormur Frístundalæsis er skemmtilegt lestrarverkefni fyrir frístundaheimili. „Ormahöfði“ er komið fyrir á einum stað og „ormahali“ á öðrum. Börn bæta við miðum milli höfuðs og hala fyrir hverja bók sem þau lesa eða lesin er fyrir þau. Því fleiri bækur sem lesnar eru, því lengri verður ormurinn.
Tilgangur verkefnisins er að efla lestraráhuga og miðlalæsi barna með því að skapa jákvæða og sýnilega hvatningu til lesturs. Mikilvægt er að tryggja aðgengi að bókum af mismunandi þyngdarstigi svo öll börn geti tekið þátt. Hægt er að styðja verkefnið með sögustundum þar sem lesið er upp og rætt um efni bókarinnar.
