Ljóð
f
Veggspjöldin innihalda úrval íslenskra ljóða og kvæða sem hægt er að nýta í frístundastarfi. Hægt er að velja ljóð mánaðarins og hafa það sýnilegt innan frístundaheimilisins með veggspjaldi þar sem ljóðið er kynnt.
Tilgangur verkfærisins er að efla miðlalæsi barna með því að kynna þeim ljóð sem miðlunarform og skapa tækifæri til hlustunar, túlkunar og skapandi vinnu.
Neðst á veggspjaldinu er QR-kóði sem vísar á Spotify-lista þar sem hægt er að hlusta á ljóðin. Á meðan börnin hlusta geta þau teiknað myndir sem tengjast ljóðinu og geta í kjölfarið hengt þær upp við hlið veggspjaldsins.
