fristundalaesi@reykjavik.is

Verkfærakista- Náttúrulæsiskassi- Náttúruperluspil

Efling máls og læsis á frístundaheimilum

Samstæðuspil

f

Verkfærið Náttúruspil er skemmtilegt samstæðuspil sem inniheldur 24 spil, 12 pör, með náttúruperlum á Íslandi. Spilið eflir bæði minni og náttúrulæsi barna á jákvæðan og gagnvirkan hátt.

Tilgangur spilsins er að kynna fjölbreytt náttúrufyrirbæri og vekja áhuga barna á landafræði og umhverfi Íslands. Mikilvægt er að gefa sér tíma til að ræða stjörnumerkin um leið og þau koma fram í spilinu ásamt mánuðunum. Þá geta oft skapast áhugaverðar umræður á meðan á spilinu stendur.

Náttúruperlurnar sem birtast í spilinu tengjast beint veggspjaldinu Náttúruperlur og er því gott að hafa það við höndina þegar spilað er. Börn fá þannig fjölbreyttar leiðir til að kynnast náttúru Íslands í leik og samveru.