Fánabingó
s
Verkfærið Fánabingó er skemmtilegt spil sem styður við þekkingu barna á þjóðfánum, löndum og tungumálum. Fánarnir sem koma fyrir í spilinu tengjast 15 algengustu móðurmálum barna á Íslandi og er gott að hafa veggspjaldið til stuðnings meðan spilað er.
Leikurinn samanstendur af 10 bingóspjöldum og 15 útdráttarspjöldum. Markmiðið er að efla orðaforða barna, þekkingu á fjölbreyttum menningarheimum og hæfni þeirra til að þekkja þjóðfána. Jafnframt stuðlar leikurinn að gleði, samveru og þátttöku í hópstarfi á frístundaheimilum.
