Landafræðiklúbbur
Við erum svo heppin að lifa í heimi þar sem til er aragrúi landa með fjölbreytta og spennandi menningu. Skemmtilegt er að kynna heiminn fyrir börnunum í gegnum Landafræðiklúbb.
f
Leiðbeiningar:
Tilvalið er að taka eitt land fyrir í einu og velta því fyrir sér. Hægt er að skoða staðsetningu landsins á hnetti, landakorti eða í forritinu Google Maps. Einnig er gaman að skoða hverskonar tungumál er talað á svæðinu, hægt að teikna myndir af dýralífi eða plöntulífi og velta fyrir sér menningu landsins.
Auk þess er mjög fróðlegt fyrir börnin að skoða Ísland á vefnum Kortavefsjá þar sem búið er að merkja ýmis íslensk fyrirbrigði inn á kort. Í landinu okkar fyrirfinnast heil ógrynni af fossum, ám, fjörðum og ýmsu öðru sem skemmtilegt er að skoða og jafnvel teikna upp.
Undir lok klúbbsins hverju sinni getur verið gaman að ræða við börnin um þau náttúruundur þau hafa séð eða hafa áhuga á að ræða um. Einnig er hægt að leyfa börnunum að leika stuttan leik í smáforritunum Europe Destinations Puzzle eða Flags of the All World Countries.
Aldursviðmið: Allir
Stærð hóps: Litlir eða meðalstórir hópar
Undirbúningur: Gott er að ákveða hvaða land/svæði er tekið fyrir hverju sinni og kynna sér það vel
Áhöld: Landafræði bók, blöð, pennar og litir. Snjalltæki eftir þörfum
Rými: Rólegt og hljóðlátt rými
Smáforrit:
Google Maps þýðir á fjölbreytt og áhugaverð tungumál. Les einnig upphátt þýðinguna.
Europe Destinations Puzzle er smáforrit þar sem hægt er að púsla myndir af nokkrum borgum í Evrópu. Hægt er að spila 9-64 bita púsl.
Flags of the All World Countries er spurningaleikur sem sem byggir á spurningum í tengslum við fána þjóðríkja.
Í Country Flags er að finna samstæðuspil með ólíkum þjóðfánum.
Montessori Ultimate Geography er leikur þar sem hægt er að kynnast heimskortinu, ólíkum heimsálfum, borgum, ríkjum og þjóðfánum.