Smáforrit
Tillögur að fjölbreyttum smáforritum sem hægt er að nota til eflingar á vísindalæsi innan frístundaheimila. Smáforritin eru valin með það í huga að börnin geti notað þau í misstórum hópum.
Earth Now
Hægt er að finna allskonar upplýsingar í rauntíma um jörðina í smáforritinu Earth Now. Upplýsingunum hefur verið safnað saman af ýmsum gervihnöttum, svo sem um lofthita, þyngdarafl og ósón lagið.
NASA
Í smáforritinu NASA má nálgast óendanlegar upplýsingar frá geimvísindastofnuninni. Allskonar fróðleik, ljósmyndir og myndbönd.
Stjörnuskífan
Stjörnuskífan er fallega myndskreytt rafræn leikjabók þar sem þrautir og fróðleikur blandast saman við skáldskapinn. Þetta er spennandi ævintýri sem inniheldur sögu vísindanna. Í hverjum kafla þarf að leysa tiltekna þraut sem tengist sögunni.
Space Images
Skoða má nýjustu myndir og myndbönd úr geimnum í smáforritinu Space images. Þar er hægt að finna myndir af stjörnum, plánetum, veðri og ýmsar fleiri myndir og myndbönd frá NASA.
Spyglass
Smáforritið Spyglass er áttaviti sem nýtir myndavélina í snjalltækinu. Þegar kveikt er á myndavélinni sést áttavitinn á skjánum en jafnframt það sem er fyrir framan tækið.
Skyview
Með smáforritinu SkyView er hægt er að beina snjalltækinu að himninum og fá upplýsingar um það sem fyrir augu ber. Hvort sem er í björtu sem dimmu fræðumst við um ýmsar stjörnur og stjörnumerki.
Box Island
Í smáforritinu Box Island er farið yfir helstu þætti forritunar í gegnum spennandi leik. Börnin öðlast þekkingu á ákveðnum grunnþáttum forritunar eins og skilyrði og endurtekningar.
Kahoot
Hægt er að búa til allskonar spurningaleiki í smáforritinu Kahoot eða finna tilbúna leiki. Margir geta spilað saman í einu og nota þá mismunandi snjalltæki til þess að svara spurningunum. Einnig getur verið skemmtilegt að fara í spurningakeppni milli frístundaheimila.
Orðaleikurinn
Skemmtilegur leikur þar sem mynd birtist ásamt stafarugli. Bókstöfunum þarf síðan að raða í rétta röð til að mynda orð. Hver leikur inniheldur 3 orð og þegar þeim hefur öllum verið raðað rétt, þá opnast næsta borð.
Spotify for kids
Smáforritið er auðveld leið fyrir börn á öllum aldri til að uppgötva tónlist í skemmtilegu umhverfi. Þar er hægt að finna fullt af sönglögum, hljóðrásum og lagalistum fyrir unga hlustendur.
Sprotarnir
Í smáforritinu er hægt að læra um peninga, magn og stærðfræði. Þar eru leystar þrautir, hlustað á sögur, stafað orð, farið yfir umferðarreglur, litað myndir, leikið á hljóðfæri ofl.
Galdrabúðin
Í smáforritinu Galdrabúðin gerast börnin kaupmenn og þurfa meðal annars að selja vörur, reikna út hvað hlutir kosta, taka á móti peningum og gefa til baka.
Osmo Coding Awbie
Osmo Coding Awbie býður upp á skemmtilega leið til að kynna forritun fyrir börnum í gegnum leik. Til að geta spilað leikinn þarf að kaupa sett af kubbum sem börnin raða saman.
Osmo Coding Jam
Smáforrit þar sem hægt er að búa til lög með því að gera lúppur og mynstur með kóðunarspjöldunum. Yfir 300 mismunandi hljómar til að velja úr.
Georg og leikirnir
Börnin geta lært staf, lestur og reikning í gegnum fjölbreytta leiki með Georg og félögum.
Scratch Jr.
Scratch Jr. er skemmtilegt smáforrit sem æfir börn í einfaldri forritun í gegnum leiki og sögur. Þar læra þau s.s. röð aðgerða og lykkjur.