Almennt starf
Hugmyndir sem framkvæma má í almennu starfi til eflingar á lista-og menningarlæsi á frístundaheimilinu. Þegar fjallað er um almennt starf er átt við allt það starf sem fer fram á frístundaheimilum að undanskildu skipulögðu klúbbastarfi.
Listamaður mánaðarins
Frístundaheimili geta verið tilvalinn vettvangur til þess að kynna fyrir börnunum listasögu og ólíka listamenn.
Til þess að láta slíkt verða að veruleika er hægt að setja upp veggspjald þar sem listamaður mánaðarins er kynntur til sögunnar í orði og mynd.
Gaman getur verið að leyfa börnunum sjálfum að útbúa efnið fyrir veggspjaldið og jafnvel velja listamann sem þeim langar að vinna með og fræðast um.
Heimsóknir á listasöfn og listaviðburði
Listasöfn á Íslandi eru dugleg að setja upp sýningar, halda viðburði eða búa til efni fyrir börn. Tilvalið er að skoða hvað söfn í hverfi frístundaheimilsins bjóða upp á.
Á vefsíðunni List fyrir alla er hægt að nálgast dagskrá yfir listaviðburði fyrir börn á grunnskólaaldri en vefurinn leggur áherslu list fyrir börn og list með börnum.
Barnamenningarhátíð sem haldin er einu sinni á ári er einnig kjörinn vettvangur til að kynna fyrir börnunum og heimsækja viðburði í tengslum við hátíðina.
Útilistaverk
Öll hverfi borgarinnar eru rík af menningu og listaverkin leynast víða.
Gaman getur verið fyrir börnin að fá tækifæri til þess að kynnast nærumhverfi sínu í gegnum menningu hverfisins.
Listasafn Reykjavíkur hefur gefið út smáforritið Útilistaverk í Reykjavík þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um öll útilistaverk sem Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með og fleiri verkum innan borgarmarkanna. Einnig er hægt að finna skemmtilega leiki í tengslum við listaverkin í smáforritinu.
Söngvar, málshættir, orðatiltæki og tilvitnanir
Íslenskan er rík af áhugaverðum og vel heppnuðum málsháttum, orðatiltækum og tilvitnunum sem notuð er í daglegu máli.
Tilvalið er að kynna börn frístundaheimisins fyrir slíku efni reglulega. Bæði til skemmtunar og einnig til þess að viðhalda þessari ríku menningararfleifð.
Hægt er að velja málshátt, orðatiltæki eða tilvitnunum og hafa upp á veggjum frístundaheimilisins með útskýringu í máli og/eða myndum.
Á vefnum Tilvitnun er hægt að skoða málshætti með skýringum. Einnig er þar að finna aragrúa af orðatiltækum, dægurperlum og tilvitnunum.
Einnig er kjörið að vinna með söng og söngtexta á frístundaheimilum. Syngjandi skóli er gagnabanki og tæki fyrir kennara í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi til þess að auka við söng og tónlist í starfi sem tilvalið er að nýta.